Staðsetning Vel í sveit sett
Tungumelar eru í Mosfellsbæ og standa við Vesturlandsveg. Þeir eru austan við veginn, fljótlega eftir að ekið hefur verið framhjá veginum til Þingvalla. Svæðið er við rætur Mosfells og þaðan er gott útsýni til Esjunnar og höfuðborgarinnar. Greið leið liggur úr Tungumelum um allt höfuðborgarsvæðið. Þá liggja Tungumelar einnig vel við samgöngum við landsbyggðina. |