Athafnaland

Hvað er athafnaland?

 

Athafnaland eins og hér um ræðir er hverfi fyrirtækja og er vel þekkt víða um heim. Athafnaland er oft staðsett nálægt öflugum samgönguæðum. Það er gjarnan sett upp í úthverfi eða útjaðri borga þar sem hægt er að þróa land með minni tilkostnaði en ella og þar sem hægt er að reisa stórar byggingar. Þegar mörg fyrirtæki eru á sama stað verður ýmis konar samhæfing einnig til þess að minnka kostnað fyrir hvert og eitt fyrirtæki við uppbyggingu innviða á borð við vegi, lagnir og tengingu við umheiminn. Til viðbótar þessu býður athafnaland á borð við Tungumela upp á meiri náttúrufegurð og tækifæri til útivistar en staðsetning í miðri borginni.